Starfsemin

Framkvæmdastjórn 2018

Framkvæmdastjórn félagsins ber ábyrgð á daglegum rekstri þess og fylgni við rekstraráætlanir.

Forstjóri

Stefán Sigurðsson

Stefán Sigurðsson er forstjóri Sýnar. Stefán tók við stöðu forstjóra í maí 2014. Áður var hann framkvæmdastjóri VÍB, Eignastýringarsviðs Íslandsbanka, auk þess að eiga sæti í framkvæmdastjórn, viðskiptanefnd og fjárfestingarráði bankans og öðrum undirnefndum. Stefán er hagfræðingur frá Háskóla Íslands, með meistaragráðu í sama fagi frá Kaupmannahafnarháskóla, og býr að mikilli reynslu af rekstri, stefnumótun og innleiðingu, uppbyggingu sölu og þjónustu, til einstaklinga, fyrirtækja og fjárfesta. Stefán situr í stjórn Viðskiptaráðs Íslands.

Framkvæmdastjóri tækni og innviða

Kjartan Briem

Kjartan Briem er framkvæmdastjóri tækni og innviða. Kjartan hefur starfað hjá félaginu frá stofnun þess í núverandi mynd. Frá 2009 hefur hann farið fyrir tæknisviði félagsins en fyrir það var hann forstöðumaður notenda- og símkerfa þess. Kjartan starfaði sem forstöðumaður og framkvæmdastjóri hjá Íslandssíma frá árinu 2000 og fyrir það um fjögurra ára skeið hjá Símanum. Kjartan er með MSc gráðu í rafmagnsverkfræði frá Danmarks Tekniske Universitet.

Aðallögfræðingur

Páll Ásgrímsson

Páll Ásgrímsson er aðallögfræðingur Sýnar en undir hann heyra einnig gæða- og öryggismál, samskiptamál, aðfangastýring og verkefnastýring. Páll kom til starfa hjá félaginu 2014 en áður var hann einn af eigendum lögfræðistofunnar Juris. Hann er reynslumikill lögmaður á sviði félagaréttar, auk þess að hafa sérhæft sig á sviði fjarskipta-, upplýsingatækni- og samkeppnisréttar. Um árabil starfaði Páll sem forstöðumaður og síðar framkvæmdastjóri lögfræðisviðs Símans (síðar Skipta) auk þess að búa að reynslu frá EFTA og ESA í Brussel og Samkeppnisstofnun. Páll hefur auk þess setið í stjórnum ýmissa fyrirtækja innan fjarskiptageirans, t.d. Símans hf., Mílu ehf., FARICE hf. og Skjásins ehf.

Framkvæmdastjóri fjármála og reksturs

Hrönn Sveinsdóttir

Hrönn Sveinsdóttir er framkvæmdastjóri fjármála- og reksturs, hún hóf störf hjá Fjarskiptum, nú Sýn hf., árið 2005 sem framkvæmdastjóri fjármálasviðs. Hrönn starfaði áður hjá P. Samúelssyni hf./Toyota frá árinu 1992, fyrst sem deildarstjóri reikningshalds og frá árinu 1999-2005 sem framkvæmdastjóri Fjármála- og starfsmannasviðs. Auk þess hefur Hrönn setið í stjórn fjölda fyrirtækja. Hrönn lauk prófi sem viðskiptafræðingur Cand. Oceon af endurskoðunarsviði frá Háskóla Íslands árið 1992.

Framkvæmdarstjóri fyrirtækja og þróunar

Þorvarður Sveinsson

Þorvarður var framkvæmdarstjóri Fyrirtækja og þróunar starfsárið 2018 en tók við sem rekstrarstjóri Sýnar í ársbyrjun 2019. Hann hefur starfað hjá félaginu frá 2015 og leitt stærri þróunarverkefni félagsins sem yfirmaður stefnumótandi verkefna og er stjórnarformaður Hey í Færeyjum. Áður starfaði Þorvarður að þróunarmálum hjá Skiptum og Klakka og sem verkefnastjóri hjá Kögun auk þess að hafa setið í stjórnum fjölda fyrirtækja. Þorvarður er menntaður fjarskiptaverkfræðingur frá Harvard University.

Framkvæmdastjóri miðla

Björn Víglundsson

Björn Víglundsson var framkvæmdastjóri miðla og lét af störfum í janúar síðastliðnum. Björn starfaði hjá félaginu frá árinu 2005. Í fyrstu sem framkvæmdastjóri markaðs- og vörumótunarsviðs, í kjölfarið sem framkvæmdastjóri einstaklingssviðs og nú sem framkvæmdastjóri miðla. Áður hafði Björn starfað sem framkvæmdastjóri markaðssviðs hjá P. Samúelssyni og hjá Tryggingamiðstöðinni. Björn er með BS-gráðu í markaðs- og viðskiptafræði frá University of Tampa.

Framkvæmdastjóri einstaklinga

Ragnheiður Hauksdóttir

Ragnheiður Hauksdóttir var framkvæmdastjóri einstaklinga og lét af störfum í janúar síðastliðnum. Hún starfaði hjá félaginu frá 2004. Fyrst sem forstöðumaður fyrirtækjalausna, síðan forstöðumaður þjónustuvers og nú síðast forstöðumaður notendakerfa á tæknisviði. Ragnheiður er menntaður viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands.

Við notum vefkökur til að bæta upplifun þína á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú skilmála okkar um notkun á vefkökum, að öðrum kosti getur þú kynnt þér hvernig má stýra notkun þeirra.