Ársreikningur 2018

Efnahagur og sjóðstreymi

Heildareignir og veltufjárhlutfall

Heildareignir félagsins námu 27.011 m.kr. í lok árs 2018 og hækkuðu um 6% milli ára. Hækkunin liggur í veltufjármunum sem hækka um 14% milli ára. Veltufjárhlutfall af áframhaldandi starfsemi var 1,4 samanborið við 1,1 í lok árs 2017.

Sæki...

Eigið fé og eiginfjárhlutfall

Eigið fé í lok tímabilsins var 10.707 m.kr. og eiginfjárhlutfall var 39,6%. Útistandandi hlutafé í lok tímabilsins nam 2.964 m.kr. og stóð óbreytt frá árslokum 2017.

Sæki...

Hreinar vaxtaberandi skuldir/EBITDA

Hreinar vaxtaberandi skuldir námu 11.205 m.kr. í árslok 2018 og var hlutfall þeirra á móti EBITDA hagnaði sl. 12 mánaða 3,4. Í nóvember 2018 var gengið frá endurfjármögnun á félaginu. Samið var við Landsbankann um langtímalán til 5,5 ára að fjárhæð 8.999 m.kr. og greidd upp lán að fjárhæð 8.014 m.kr.

Sæki...

Fjárfestingar

Rekstrarfjárfestingar námu alls 2.407 m.kr. á árinu 2018 og hækkuðu um 45% milli ára. Hlutfall fjárfestinga af tekjum var því 11,0%. Horfur félagsins gera ráð fyrir að fjárfestingarhlutfallið verði um 9% á árinu 2019.

Sæki...

Frjálst fjárflæði

Frjálst fjárflæði félagsins á árinu 2018 var 341 m.kr. sem er lækkun um 58% frá árinu 2017. Lækkunina má fyrst og fremst rekja til hækkunar á rekstrarfjárfestingum og 30% aukningar í veltufjárbindingu.

Sæki...
Ársreikningur Sýnar 2018
arsreikningur.pdf

Við notum vefkökur til að bæta upplifun þína á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú skilmála okkar um notkun á vefkökum, að öðrum kosti getur þú kynnt þér hvernig má stýra notkun þeirra.